02. júní 2017
Fræðslufundur - að hefja eftirlaun
self.header_image.title

Fræðslufundur fyrir sjóðfélaga sem nálgast töku lífeyris verður haldinn miðvikudaginn 7. júní, kl. 17:00 í Sundagörðum 2, 5. hæð og er honum ætlað að gefa svör við helstu spurningum sem samkvæmt reynslu okkar koma upp í tengslum við þessi tímamót. Kynningunni er ætlað að vera almenns eðlis. Spurningum sem snúa beint að aðild þinni að sjóðnum og réttindum þínum erum við ávallt tilbúin að svara á skrifstofunni.

Meðal atriða sem farið verður yfir á fundinum

  • Ákvæði samþykkta sjóðsins um lífeyristöku.
  • Atriði sem mestu ráða um hvenær sjóðfélagar ákveða að hefja töku lífeyris.
  • Samspil útgreiðslna úr lífeyrissjóðum og Tryggingastofnun
  • Aðrar hagnýtar upplýsingar sem tengjast þessum tímamótum.

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir kl. 15:00 þriðjudaginn 6. júní 2017 í síma 480 7000 eða með tölvupósti á birta@birta.is.