25. september 2019
Frestur til að samþykkja áframhaldandi ráðstöfun inn á lán er til og með 30. september
self.header_image.title

Stjórnvöld samþykktu í júlí síðastliðnum að framlengja um tvö ár heimild til að greiða séreignarsparnað skattfrjálst inn á húsnæðislán. Þeir sem þegar eru að nýta sér úrræðið ættu að hafa fengið tölvupóst frá ríkisskattstjóra þar sem vakin er athygli á málinu. Umsækjendur með virka ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á lán geta nú óskað eftir því að ráðstöfunin haldi áfram. Þetta er gert með því að skrá sig inn á leidretting.is og óska eftir að gildistími ráðstöfunar sé framlengdur.

Til að tryggja að ekki verði rof á greiðslum inn á húsnæðislán þarf að sækja um framlenginguna fyrir 30. september næstkomandi.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu ríkisskattstjóra.